Auglýsing

Cleveland lokkar Ray Allen til sín — Hvað gerir Lebron?

Hvert fer Lebron James? Fyrir rúmri viku töldu menn ljóst að James myndi skrifa undir hjá Miami á ný en blikur eru á lofti. Margir telja að nú sé kappinn á leiðinni aftur á heimaslóðir til Cleveland og samkvæmt nýjustu fréttum eru menn þar í borg að reyna að lokka Ray Allen, liðsfélaga James hjá Miami Heat, til liðsins.

Af hverju myndi Ray Allen fara til Cleveland? Jú, til að spila með James samkvæmt frétt SB Nation. Hvað James gerir ætti að koma í ljós á næstu vikum en það er eflaust enginn spenntari fyrir þessum Cleveland-pælingum en Kyrie Irving, leikstjórnandi liðsins, þar sem James tekur með sér möguleika á titli hvert sem hann fer.

En á meðan heimsbyggðin veltir þessu fyrir sér kærir Lebron James sig kollóttan og býður góðan daginn.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing