Það sem af er árinu 2019 hafa komið upp 34 mál hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu þar sem grunur er um kaup á vændi. Á sama tíma á síðasta ári höfðu aðeins komið upp sex sambærileg mál.Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.
Þegar tölur á milli ára eru skoðaðar ber að hafa í huga að miðað er við dagsetningu brots í þessum málum. Vegna eðlis málanna koma þau oft til afgreiðslu löngu eftir að brot var framið. Þess vegna getur verið töluverður munur á tölum ef þær eru annars vegar skoðaðar eftir dagsetningu brots og hins vegar dagsetningu skráningar.
Á árinu 2017 komu upp 29 mál þar sem grunur var um kaup á vændi á starfssvæði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, en árið 2018 voru þau aðeins níu, sé miðað við dagsetningu brota, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.