Eftir sína fjórðu sýningarhelgi eru rúmlega 40,000 manns búnir að sjá Lof mér að Falla og er hún þar með orðin þriðja vinsælasta mynd ársins og lang tekjuhæsta íslenska mynd á árinu.
Framundan hjá leikstjóra, aðalleikurum og framleiðendum er að fylgja myndinni eftir á kvikmyndahátíðina Busan í Suður Kóreu þar sem Lof mér að falla mun taka þátt í World Cinema hluta hátíðarinnar. Busan er stærsta kvikmyndahátíð Asíu og fer fram 4. til 13.október. Þetta verður frumsýning myndarinnar í Asíu.
Myndin hefur vakið athygli um allan heim og hafa erlendir miðlar keppst um að lofa hana. Stephen Dalton hjá Hollywood Reporter birti dóm um myndina eftir að hafa séð hana á Toronto kvikmyndahátíðinni og sagði hana vera „grípandi og hjartnæma frásögn.“ Hann fór svo fögrum orðum um frábæran leikarahópinn, myndatökuna og handritið. Dóminn í heild sinni má lesa með því að smella hér.
Myndin mun ferðast um heimsbyggðina á næstu vikum og mánuðum. Viðræður eru langt komnar við fyrirtæki í löndum á borð við Frakkland, Þýskaland, England, Danmörku og Bandaríkin þar sem Netflix er að skoða myndina.