Auglýsing

90 manns leituðu að Illes í Vík í Mýrdal en án árangurs

Leitin að Illes Benedek Incze hefur engan árangur borið. Leit að Illes hófst í gærkvöldi á svæðinu í kringum Vík í Mýrdal.

Þetta staðfestir Jón Þór Víglundsson upplýsingafulltrúi Landsbjargar. Leitin hófst í gærkvöldi þegar tekið var að skyggja en notast var meðal annars við dróna og sporhunda. Veðurskilyrði voru hinsvegar ekki góð á svæðinu líkt og á landinu öllu, rigning og mikið rok.

Leit verður að öllum líkindum fram haldið í dag en staðan verður tekin á fundum nú í morgunsárið en rúmlega níutíu manns koma að leitinni.

Síðast spurðist til Illes, sem býr í Vík, um klukkan þrjú í fyrrinótt og eru allir sem geta mögulega veitt upplýsingar um ferðir hans eftir þann tíma beðnir um að hafa samband við 112.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing