Sænska hljómsveitin ABBA sendi í dag frá sér fréttatilkynningu á Instagram sem segir að hópurinn hafi ákveðið að koma saman í hljóðveri og taka upp tvö ný lög. Margir aðdáendur sveitarinnar fagna þessari ákvörðun en hún hætti fyrir 35 árum. Þau Bjorn, Benny, Agnetha og Anni-Frid hafa ákveðið að fara í hljóðver og taka upp tvö ný lög.
„Það var eins og tíminn hefði staðið í stað og að við hefðum bara farið í stutt frí,“ segir í tilkynningunni sem krakkarnir í ABBA birtu á Instagram og sjá má hér að neðan.