Einn þeirra sem spilar tölvuleikinn EVE Online af mikilli ástríðu sendi einum af leikjahönnuðum CPP, fyrirtækisins sem framleiðir leikinn, tvo poka af hlaupi og innibombu í vikunni. Sælgætið og bomban voru í laginu eins og typpi. Um þetta er fjallað á RÚV.
Mörg þeirra sem spila leikinn eru alls ekki hrifin af því þegar breytingar eru gerðar á leiknum og hika ekki við að láta starfsfólk CPP óþvegið. Umrædd sending er ein af þeim.
Þegar starfsmaður tollsins á Íslandi hafði samband við starfsmanninn sem fékk sendinguna, sagðist hafa opnað pakkann og lýsti innihaldinu bað starfsmaður CCP um að sendingunni yrði hent.