Gestir á tónleikum Justins Bieber í Kórnum í Kópavogi saka kanadísku poppstjörnuna um að mæma. Tónleikarnir eru þeir umfangsmestu sem haldnir hafa verið á Íslandi en á Twitter lýsa aðdáendur yfir vonbrigðum sínum með að söngurinn sé á upptöku.
Vonbrigði dagsins að Bieber mæmi … geggjað svið samt #bieber #timberlakealltafbetri #meðalhæð150
— Jóhanna Gísladóttir (@johannamgisla) September 8, 2016
https://twitter.com/arnorbrynjars/status/773985270995746816
Málið virðist ekki svona einfalt
Nútíminn náði í eldheitan aðdáanda á tónleikunum sem fullyrti að Bieber hefði ekkert sungið í fyrstu þremur lögunum. „Og var ekkert að fela það,“ segir hann.
Annar tónleikagestur sagði augljóst að hann væri að styðjast við söng á upptöku þegar hann dansar. Hann sagði einnig að okkar maður færi alla leið í söngnum í rólegu lögunum.
Kveikið á mæknum #Bieber
— Guðmundur Marinó (@GummiMarino) September 8, 2016
Þegar þú ferð á JB tónleikana til að horfa á hann mæma ?
— gabríela markúss (@gabrielam1107) September 8, 2016
Æiii com on bieber
Ekki fkn mæma— Tommi Tanölg (@TomasJohannss) September 8, 2016
Búist er við að um 38 þúsund manns sjái Justin Bieber á tónleikum í kvöld og annað kvöld. Hér má sjá myndband frá tónleikunum í kvöld
Another video of Justin Bieber performing at the #PurposeTour tonight in Iceland. (September 8) pic.twitter.com/WyCrsSC2m9
— JustinBieberCrew.com (@JBCrewdotcom) September 8, 2016
Justin Bieber lenti á Reykjavíkurflugvelli í einkaþotu í gær. Tugir aðdáenda tóku á móti honum þegar hann lenti og sannkallað Bieber-æði hefur ríkt á Íslandi síðustu daga.
Bieber hefur haft ýmislegt fyrir stafni á Íslandi. Vísir greindi frá því að hann hafi skellt sér í Bláa lónið skömmu eftir að hann lenti í gær. Þá hefur Nútíminn heimildir fyrir því að hann hafi farið í þyrlu að skoða Gullfoss.
Þá tók hann Skautahöllina í Laugardal á leigu í gærkvöldi frá klukkan 20.30. Þetta kemur fram á vef DV. Þar kemur fram að Bieber hafi ætlað að spila hokkí í skautahöllinni. Hann mætti hins vegar aldrei.
Sjá einnig: Stemningin á Reykjavíkurflugvelli þegar æstir aðdáendur biðu eftir Justin Bieber
DV greinir frá því að foreldrar barna og unglinga, sem áttu að vera á æfingum í skautahöllinni í gærkvöldi, hafi fengið póst um að æfingar myndu falla niður af óviðráðanlegum ástæðum í gærkvöldi.
Þá kemur fram að mikill viðbúnaður hafi verið á svæðinu og að lögreglan hafi á tímabili lokað götunum sem liggja að skautahöllinni.