Akureyri er einn 40 staða í heiminum sem breska blaðið The Guardian mælir með að fólk heimsæki á árinu. Í umfjölluninni segir að Akureyri sé frábær áfangastaður sem hafi uppá margt að bjóða. Aðrir staðir sem prýða listann eru t.a.m. Amsterdam, Bratislava, Perú og Laos.
Í greininni segir að breska ferðaskrifstofan Super Break bjóði uppá pakkaferðir beint til Akureyrar frá Cardiff og Edinburgh.
Greinarhöfundur bendir að Akureyri sé stutt frá Mývatni og Goðafossi þar sem þættirnir Game of Thrones voru að hluta teknir upp en einnig Siglufirði þar sem þættirnir Ófærð voru teknir upp.