Rapparinn Alexander Jarl hefur sent frá sér nýtt lag. Lagið heitir „Fyrir mig“. Hann fær tónlistarmanninn Helga Ársæl með sér í lið við gerð lagsins sem er afar grípandi og ferskt. Hlustaðu á lagið í spilaranum hér að neðan.
Alexander lýsir laginu á skemmtilegan hátt í samtali við vefsíðuna Ske.is „Innflytjenda wave. Mediterranean strandpartí. Brúnir bastarðar í Barcelona treyjum. Fimm evru kebab og rosé. Í strætó að vibe-a með speaker, no headphones. Mjúkt samt hart, hægt samt hratt. Í strætó að vibe-a með speaker,“ sagði Alexander í samtali við Ske.
Hlustaðu á lagið hér