Neytendur á Íslandi geta búist við allt að fatnaður í H&M á Íslandi verði um 60 prósent dýrari en í Bretlandi. Vísir birti í dag dæmi um verð á vörum sem munu fást í H&M hér á landi og Nútíminn bar nokkur verð saman við verð á vörum í H&M í Bretlandi.
Um tvo ólíka markaði er að ræða og er þessi samanburður að sjálfsögðu til gamans gerður. Hann leiðir hins vegar í ljós að þó Íslendingar séu að fá verslanir H&M til Íslands þá verður enn þá ódýrara að versla sömu vörur erlendis.
Sem dæmi þá munu buxur sem kosta 2.514 krónur í verslunum fyrirtækisins í Bretlandi kosta 3.495 krónur í H&M hér á landi. Munurinn er 39 pórsent.
Strigaskór sem kosta um 2.793 krónur í H&M í Bretlandi koma til með að kosta 4.495 krónur í H&M á Íslandi. Munurinn er um 60 prósent. Þá munu ökklastígvél sem kosta um 3.492 krónur í Bretland kosta 4.995 krónur á Íslandi. Munurinn er 43 prósent.
Peysa sem kostar 2.793 krónur í H&M í Bretlandi mun kosta 4.495 krónur hér á landi. Munurinn er um 60 prósent. Jakki sem kostar um 5.588 krónur í Bretlandi mun kosta 8.995 krónur hér á landi. Munurinn er um 60 prósent.
Og gallabuxur sem kosta um 3.356 krónur í verslunum H&M í Bretlandi koma til með að kosta 4.995 krónur hér á landi. Munurinn er rúm 48 prósent.
Fyrsta H&M verslunin opnar í Smáralind laugardaginn 26. ágúst. Þá stendur til að opna verslanir í Kringlunni og í miðborg Reykjavíkur.
Fyrstu gestirnir sem mæta í verslunina í Smáralind þegar hún opnar fá gjafakort frá H&M. Fyrsti viðskiptavinurinn í röðinni fær 25 þúsund króna gjafakort, sá næsti fær 20 þúsund króna gjafabréf og sá þriðji fær 15 þúsund króna gjafabréf. Næstu þúsund gestir fá 1.500 króna gjafakort.