Fjallað verður um nýafstaðnar forsetakosningarnar í Bandaríkjunum í næstu þáttaröð bandarísku hryllingsþáttanna American Horror Story. Ryan Murphy, framleiðandi þáttanna, greindi frá þessu í viðtali við spjallþáttastjórnandann Andy Cohen í þættinum Watch What Happens Live á dögunum.
Hver þáttaröð hjá American Horror Story stendur sjálfstæð og hafa þættirnir þótt nokkuð grófir og óhugnanlegir. Framleiðendur þáttanna virðast hafa metið það sem svo að kosningabarátta Donalds Trump og Hillary Clinton hafi uppfyllt þau skilyrði.
Aðspurður hvort að Donald Trump eigi eftir að koma fyrir í þáttaröðinni svaraði Murphy: „Kannski“.