Auglýsing

Andri Snær hjólar í Jón Gunnarsson, hefur málað sig gjörsamlega út í horn

Rithöfundurinn Andri Snær Magnason skorar á vini sína í Sjálfstæðisflokknum að lýsa yfir sjálfstæði; að þeir séu ósammála og ótengdir Jóni Gunnarssyni þingmanni. „Ég skora á þá að skora á hann að biðjast afsökunar,“ segir Andri Snær á Facebook-síðu sinni.

Tilefnið er orð Jóns sem játaði á Facebook-síðu sinni í dag að hann skildi ekkert í Björk og velti því fyrir sér hvort hún borgaði skatta á Íslandi. Guðmundur Gunnarsson, fyrrum formaður Rafiðnaðarsambandsins og faðir Bjarkar Guðmundsdóttur söngkonu, lýsti því í kjölfarið yfir að dóttir hans búi á Íslandi og greiða hér skatta.

Andri Snær segir að Jón snúi blinda auganum að þeim milljörðum sem Alcoa hefur skotið undan skatti. „Jón Gunnarsson býr í kjördæmi þar sem ferðamennska er langstærsti atvinnuvegurinn, hann á engan þátt í þeim ferðamannastraumi, það er náttúran og ímyndin – sem hann hefur ekki átt nokkurn þátt í að skapa eða vernda,“ segir hann.

Helsta gæluverkefni Jóns – hið strandaða draugaskip álversins í Helguvík átti að soga til sín alla orku suðvesturhornsins og stórauka loftmengun við Faxaflóa. Ekkert stendur eftir af því dæmi nema tugmilljarða tap og hálf gjaldþrota sveitarfélag.

Andri segir að náttúruvendarsinnar hafi þurft að gerast talsmenn fyrir venjulegan kísildalsfrumkvöðlakapítalisma. „Vinir Jóns hnussa yfir því og nota níðyrðið „eitthvað annað“ um heila iðnbyltingu sem hefur farið framhjá þeim,“ segir hann.

„Björk sjálf er svo auðvitað dæmi um eitthvað sem enginn sjálfstæðismaður á að gera. Hún hefur alltaf farið sínar eigin leiðir, hún hefur ekki fylgt flokkslínum, hún hefur skapað allt úr engu, hún skapaði sína eigin klíku og sitt eigið vald, hún hefur unnið með mestu listamönnum okkar tíma, fengið tilnefningar til nánast allra verðlauna nema nóbelsverðlauna, eini Íslendingurinn sem segja má að sé mælanleg hagstærð,“ segir hann.

„Já auðvitað er þetta algera sjálfstæði og einkaframtak grunsamlegt, ekkert frá hernum, enginn úthlutaður virkjunarkostur, engin meðgjöf og enginn frændi sem reddaði plötusamningi í Bretlandi. Jón Gunnarsson er dæmi um menn sem hafa málað sig svo gjörsamlega út í horn að sjálf náttúran og sköpunarkrafturinn er „óvinurinn“ en sjálft ósjálfstæðið – að fórna landi sínu fyrir nokkur störf hjá alþjóðlegu stórfyrirtæki er æðsta dyggðin.“

Andri Snær segir að lágpunktur Jóns Gunnarssonar séu dylgjur um skattamál. „Sem er fasísk aðferð – á sama tíma og blinda auganu er snúið að þeim milljörðum sem Alcoa hefur skotið undan skatti,“ segir hann.

„Ég skora á alla vini mína í Sjálfstæðisfloknum að lýsa yfir sjálfstæði, að þeir séu ósammála og ótengdir Jóni Gunnarssyni, ég skora á þá að skora á hann að biðjast afsökunar. Ég skora á þá að játa sig sigraða og sættast við fegurð Íslands og sköpunarkraftinn sem býr í fólkinu sem hér býr.“

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing