Grínistinn Ari Eldjárn greindi frá því á Twitter í gærkvöldi að stjórnmálafræðineminn Jakob Birgisson væri næsta stóra nafn í íslensku uppistandssenunni. Jakob sló í gegn á Hard Rock Café í gær.
„Sá Jakob Birgisson flytja sitt fyrsta uppistand í kvöld fyrir troðfullu húsi og get vottað að stórir hlutir voru að gerast. Annað eins talent hef ég ekki áður séð,“ skrifaði Ari meðal annars.
Sá Jakob Birgisson flytja sitt fyrsta uppistand í kvöld fyrir troðfullu húsi og get vottað að stórir hlutir voru að gerast. Annað eins talent hef ég ekki áður séð og ég öfunda þá sem eiga eftir að sjá hann í fyrsta sinn. Meistari Jakob ber nafn með rentu. #meistarijakob pic.twitter.com/RWbZL3KfPx
— Ari Eldjárn (@arieldjarn) October 27, 2018
Sýning Jakobs heitir Meistari Jakob og ef marka má orð Ara eigum við eftir að heyra meira frá þessum meistara í framtíðinni.