Ari Ólafsson keppir fyrir Íslands hönd í Eurovision í vor með lagið Our Choice. Úrslitin í Söngvakeppninni fóru fram í beinni útsendingu á RÚV í kvöld.
Eurovision söngvakeppnin fer fram í Lissabon í Portúgal dagana 8., 9. og 12. maí. Ísland hefur ekki komist áfram í lokakeppnina síðustu þrjú skipti. Síðasta lag sem komst áfram var lagið Enga fordóma með Pollapönki. Ísland keppir 9. maí í undankeppninni.