Arna Ýr Jónsdóttir, fyrrum Ungfrú Ísland og Miss Univers og Vignir Þór Bollason, eiga von á sínu fyrsta barni. Arna greindi frá fréttunum á Instagram í gær.
„Lítið kraftaverk á leiðinni í júní, lífið er of gott við okkur,“ skrifar Arna Ýr við mynd þar sem parið heldur á sónarmyndum.