Auglýsing

Ásgeir Trausti á ferð og flugi: Flytur nýja útgáfu af Heimförinni

Tónlistarmaðurinn Ásgeir Trausti frumflutti nýja útgáfu af laginu Going home, eða Heimförin, í hinum svokölluðu Crypt Sessions í Lundúnum á dögunum. Vefur breska blaðsins Q fjallar um flutninginn og segir frá því að hann komi þrisvar fram í Bretlandi á næstunni.

Ásgeir hefur í nógu að snúast þessa dagana. Frammistaða hans á dönsku tónlistarhátíðinni ARoS þótti töfrandi og á næstunni kemur hann fram í Hollandi, Frakklandi, Bandaríkjunum, Kanada og í Þýskalandi. Næstu tónleikar hans á Íslandi verða á Iceland Airwaves í nóvember.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing