Þingkonan Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir hefur sett íbúðina sína sem stendur við Stakkholt í Reykjavík á sölu. Íbúðin er tveggja herbergja og er 72 fm að stærð. Húsið var byggt árið 2014 en íbúð Áslaugar er á fjórðu hæð með gott útsýni.
Á fasteignavef mbl.is segir um íbúðna að þar sé fallegt um að litast. „Dökkbláir veggir setja svip sinn á heimilið, bæði í stofu og í svefnherbergi. Eldhúsið er opið inn í stofuna en þetta rými er með nýjum innréttingum og með ljósu parketi á gólfum. Innréttingar í eldhúsi og á baðherbergi koma frá GKS og státa þær af góðu skápaplássi.“
Ásett verð er rúmar 46 milljónir. Hér að neðan má sjá myndir af íbúðinni