Ásta Guðrún Helgadóttir, þingmaður Pírata, hafnar því alfarið að hafa skráð sig í Samfylkinguna líkt og Eiríkur Jónsson fullyrðir á vefsíðu sinni. Þar kemur fram að Ásta séð á leið úr flokknum og yfir í Samfylkinguna og það verði tilkynnt á allra næstu dögum.
Ásta var ekki lengi að bregðast við fréttinni og í færslu á Facebook-síðu hennar segir: „Orðrómur um að ég sé gengin í Samfylkinguna er bull.“
Eiríkur fullyrðir einnig að Ásta hafi ekki verið velkomin á þingflokksfundi Pírata eftir að hún var sett af sem þingflokksformaður og þannig stillt upp við vegg.
Ásta segir í samtali við Nútímann að það ekki sé heldur ekki rétt. Hún segist þó ekki hafa sótt þingflokksfundi „eins og áður“ af persónulegum ástæðum. Aðspurð um hvenær hún mætti síðast á fund segir hún að það hafi verið „um daginn“, eða fyrir þinglok.