Auglýsing

Ástþór vill að forsetinn stöðvi sjö milljarða króna vopnakaup Alþingis

Athafnamaðurinn og fyrrum forsetaframbjóðandinn Ástþór Magnússon hefur sett af stað undirskriftarsöfnun til þess að reyna að koma í veg fyrir að Ísland eyði tæpum sjö milljörðum í hernaðaraðstoð.

Hann vill með þessu setja þrýsting á forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur, og hvetur hana til að vísa fjárlögum sem „innihalda vopnakaup fyrir erlent ríki til þjóðaratkvæðagreiðslu.“

Tæplega 600 manns hafa skrifað undir listann sem hægt er að nálgast á vefsíðunni austurvollur.is en þar er að finna nokkur ummæli sem Ástþór segir að Halla Tómasdóttir hafi sagt fyrr á þessu ári.

„Það er ekki sjálfsagt að kaupa vopn, það er ekki sjálfsagt og Íslendingar úti um allt land hafa tekið undir með mér. Besta öryggisstefnan að vera alltaf landið sem velur frið og hættulegasta stefnan sem við getum valið sem þjóð er að að taka þátt í þessum átökum. Við getum verið litla þjóðin sem lyftir grettistaki í heiminum með því að velja frið,“ sagði Halla Tómasdóttir í fyrr á þessu ári samkvæmt því sem fram kemur á síðunni.

„Sama dag og Halla Tómasdóttir nýkjörinn forseti Íslands setti Alþingi lagði ríkisstjórnin fram fjárlagafrumvarp með nær 7 milljörðum til hernaðar á næsta ári að mestu fyrir Úkraínu. Á sama tíma er spennustigið að aukast og Rússar hóta að ráðast á þau ríki sem senda vopn. Forseti Íslands hefur lýst andstöðu við þessar hugmyndir og segir hægt að semja um aðrar lausnir en vopnakaup,“ segir þar enn fremur.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing