Atli Fannar Bjarkason fór að venju yfir fréttir vikunnar í þættinum Vikan með Gísla Marteini í gærkvöldi. Óli Stef, Brynjar Níelsson, Donald Trump og Katrín Jakobsdóttir eru á meðal þeirra sem koma fyrir í úttekt Atla Fannars.
Atli fór þá yfir samruna Icelandair og Wowair og varaði rekstraraðila sem hafa verið valdir viðskiptamenn ársins við örlögum sínum.