Auddi Blö segir í samtali við Menningarvef RÚV að minnsta mál sé að uppfæra skráningu fyrir þjóðhátíðarlögum þríeykisins FM95Blö en fyrr í dag velti blaðamaður RÚV því fyrir sér hvort þjóðhátíðarlagið „Ég Ætla Að Sigra Eyjuna“ væri stolið vegna mikilla líkinda enda sama lagið þó að þeir Ásgeir Orri Ásgeirsson og Sæþór Kristjánsson séu skrifaðir fyrir því og það sé framleitt af StopWaitGo.
Sjá einnig: Auddi Blö vonar að RÚV fari ekki að kafa nánar í þjóðhátíðarlög FM95Blö: „Þau eru öll frumsamin!“
Auddi segist í samtali við Menningarvefinn hafa tekið það skýrt fram bæði við Vísi og í öllum útvarpsviðtölum að hann hafi heyrt lagið í Suður-Ameríku en blaðamaður bendir á það að Auddi hafi þó ekki tilgreint í þessum viðtölum hvaða tónlistarmenn væru höfundar upprunarlegu útgáfunnar.
Auddi segir jafnframt að FM95Blö hafi gert ábreiður þau þrjú ár sem þeir hafi sent frá sér þjóðhátíðarlag og býst við að hlustendur ætli því ekki að lagið sé frumsamið.
Hann segir að í skráningu hinna þjóðhátíðarlaganna hafi ekki verið tekið fram að um ábreiðu væri að ræða en jafnframt sé minnsta mál að uppfæra skráninguna.
Heitar umræður mynduðust um málið eftir að Auddi tísti þar sem hann gerði góðlátlegt grín að þessu máli
Ætla að vona að Rúv fari ekki að kafa nánar í hin lögin okkar. Get staðfest að Án þín, Fm95blö-lagið, Þjóðhátíð Bíður og Ég fer á Þjóðhátíð eru öll frumsamin!
— Auðunn Blöndal (@Auddib) August 3, 2018
Kjartan Atli Kjartansson blandaði sér í umræðuna og fannst verið að gera úlfalda úr mýflugu
Nú var sko komið upp um þetta magnaða leyndarmál, sem hefur reyndar ekki verið sagt frá nema svona 500 sinnum í fjölmiðlum ????????
— Kjartan Atli (@kjartansson4) August 3, 2018
En Nína Richter, blaðamaður Menningarvefs RÚV, benti á að aldrei hafi komið fram að lagið sé ábreiða heldur sé það skrifað á íslenska höfunda og þar standi hnífurinn í kúnni
Það skal tekið fram að það stendur skýrum stöfum á Youtube að lagið sé eftir tvo íslenska höfunda. Sama gildir á Spotify. Ég þekki ekki marga hér á landi sem hafa hlustað á lagið Obsesion eða þekktu það áður en þessi ábreiða kom til.
— Nína Richter (@Kisumamma) August 3, 2018
Nína segir Audda hafa viðurkennt að mistök hafi verið gerð við skráninguna og hann fékk að svara fyrir sig í frétt RÚV
Auðunn sagði sjálfur að mistök hefðu verið gerð við skráninguna og hann fékk svo sannarlega að svara þessu. Einhver hefur haft fyrir því að skrá inn ranga höfunda að laginu, lagi sem er óþekkt hér á landi og það er að mínu mati frétt. https://t.co/LlgAlw7Oxa
— Nína Richter (@Kisumamma) August 3, 2018
Kjartan vildi meina að þetta væri gömul frétt í besta falli
Jæja, þú metur það. Væri gaman að renna yfir skráningar allra íslenskra listamanna á Youtube og fara í svona fréttir. Þetta – að þetta væri coverlag – hefur oft komið fram í fjölmiðlum. Þannig að er í besta falli gömul frétt.
— Kjartan Atli (@kjartansson4) August 3, 2018
Nína gaf lítið fyrir ummæli Kjartans og sá enga ástæðu til þess að halda áfram að ræða þetta, Auddi hafi afgreitt málið fagmannlega
Mér finnst þú algjörlega hafa afgreitt þetta mál fagmannlega Auðunn, sé enga ástæðu til að halda þessu áfram. En ég er ekki sammála Kjartani hérna og finnst mikilvægt að standa rétt að skráningu af þessu tagi.
— Nína Richter (@Kisumamma) August 3, 2018
Málið leystist og allir eru ferskir
Allt komið á hreint og allir ferskir ????
— Auðunn Blöndal (@Auddib) August 3, 2018