Auðunn Blöndal og Sverrir Þór Sverrisson kepptu í eftirhermukeppninni „Garrinn“ í þættinum Hanastél á Rás 2 á dögunum. Árangurinn var skelfilegur en myndband af keppninni má sjá hér fyrir neðan.
Auðunn vann Sveppa og er því kominn í undanúrslit keppninnar, sem gengur út á að herma eftir persónum Jóns Gnarr.
Útvarpsmaðurinn Sólmundur Hólm vann Guðfinn Sigurvinsson í fyrstu umferð. Uppistandarinn Ari Eldjárn og Björg Magnúsdóttir, umsjónarmaður Síðdegisútvarpsins og rithöfundur, mætast í Gnarrinum næsta laugardag.
Hér má sjá Audda og Sveppa mætast.