Aziz Ansari hefur svarað fyrir ásakanir um kynferðislega áreitni í nýju uppistandi sínu á Netflix. Í uppistandinu Right Now svarar þessi 36 ára gamli grínisti ásakanir 23 ára ljósmyndara frá því á síðasta ári. Aziz er þekktastur fyrir hlutverk sitt í þáttunum Parks and Recreation og fyrir þætti sína Master of None á Netflix.
Sjá einnig: Aziz Ansari sakaður um kynferðisofbeldi á stefnumóti
Konan sem hefur verið kölluð Grace sagði að Ansari hefði notfært sér hana á stefnumóti. Ansari talar um þetta í upphafi nýja uppistandsins á Netflix. „Ég hef ekki sagt mikið um þetta allt saman en ég hef talað um þetta á þessum túr af því að þið komuð að sjá mig og ég er viss um að sum ykkar eruð forvitin um þetta.“
Umrædd kona hitti Aziz í partíi eftir Emmy-verðlaunin í Los Angeles árið 2017. Þau skiptust á símanúmerum og hittust á stefnumóti í Manhattan viku síðar. Í umfjöllun um málið á vefmiðlinum Vulture kemur fram að konan hafi sagt stefnumótið hafa byrjað eðlilega. Þau fóru út að borða og svo heim til hans en þar gerðist hann að hennar sögn ágengur.
„Það er flókið fyrir mig að tala um þetta. Ég hef upplifað svo margt undanfarið ár. Á tímabili var ég hræddur, niðurlægður og ég skammaðist mín. Mér leið á endanum verst yfir því að þessari persónu leið svona.“
Sjá einnig: Aziz Ansari sendir frá sér yfirlýsingu eftir að hafa verið sakaður um kynferðisofbeldi á stefnumóti
„Núna ári síðar hef ég hugsað mikið og þetta hefur gefið mér tækifæri á því að þroskast. Ég vona að ég sé orðin betri manneskja,“ segir hann. „Þetta hefur ekki bara gert mig umburðalyndari, heldur líka aðra einstaklinga, og það er það góða.“