Spjallþáttastjórnandinn Jimmy Fallon er búinn að vera í miklu stuði það sem af er ári. Í þætti sínum á dögunum sigraði hann Chris Hemsworth í vatnastríði og fékk fyrir vikið að baða hann í meira vatni.
Hemsworth er kynþokkafyllsti maður heims um þessar mundir að mati tímaritsins People þannig að salurinn ærðist þegar gusurnar bleyttu skyrtu leikarans.
Horfðu á stríðið hér fyrir neðan.