Auglýsing

Banaslysið á Reykjanesbrautinni: Var undir áhrifum fíkniefna

Ökumaður Renault Kangoo-sendibifreiðar sem lést í umferðarslysi á Reykjanesbrautinni, rétt hjá miðlægum gatnamótum Innri-Njarðvíkur, var undir áhrifum fíkniefna þegar hann ók bifreiðinni. Þetta eru niðurstöður rannsóknarnefndar samgönguslysa sem nú hefur lokið rannsókn á banaslysinu.

Víkurfréttir greina frá.

Slysið átti sér stað að morgni 2. nóvember 2023 en þá var Renault Kangoo sendibifreið ekið Reykjanesbraut til vesturs á hægri akrein í átt til Reykjanesbæjar. Þegar bifreiðinni hafði verið ekið tæpan kílómetra framhjá eystri miðlægu gatnamótunum við Innri-Njarðvík í Reykjanesbæ var henni, að sögn vitnis, sveigt hratt yfir á vinstri akrein, áfram út fyrir veginn og inn á miðdeili með v-laga lægð á milli akbrautanna.

Víravegriðið stóð fyrir sínu

Þar var bifreiðinni ekið á víravegrið á miðdeilinum með þeim afleiðingum að bifreiðin valt um eina og hálfa veltu. Víravegriðið kom í veg fyrir að bifreiðin færi yfir á gagnstæða akrein sem, að sögn annars vitnis, hindraði að henni væri ekið á bifreið sem var ekið úr gagnstæðri átt.

Ökumaður, sem var einn í bifreiðinni, lést í slysinu. Ökumaður lést á slysstað af völdum fjöláverka. Hann var ekki spenntur í öryggisbelti og varð að hluta til undir bifreiðinni þegar hún stöðvaðist.

Í niðurstöðum skýrslunnar segir að ökumaður var ekki hæfur til að stjórna ökutæki vegna áhrifa fíkniefnis. Fíkniefni mældist í blóði ökumanns.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing