Tveir starfsmenn sjónvarpsstöðvarinnar WDBJ7 TV, fréttakonan Alison Parker og myndatökumaðurinn Adam Ward, voru myrt þegar þau voru að taka viðtal í beinni útsendingu í Moneta í Bedford-sýslu í morgun. Myndband úr útsendingunni má sjá hér fyrir neðan.
Byssumaðurinn gengur laus en tökumaðurinn Adam Ward náði þessari mynd af morðingjanum. Ward lést skömmu síðar.
Jeffrey Marks, yfirmaður sjónvarpsstöðvarinnar, sagði í yfirlýsingu að ekki sé vitað hver ástæðan var fyrir árásinni.
Við vitum ekki ástæðuna, við vitum ekki hvort einhver sé grunaður eða hver morðinginn er.
Parker var að hefja viðtal þegar átta skotum var hleypt af. Myndavélin sést snúast og öskur heyrast en skotárásin átti sér stað í verslunarmiðstöð nærri Smith Mountain Lake.
Við vörum viðkvæma við myndbandinu.
https://www.youtube.com/watch?v=cl8okt4BuU4