Stjórn Persónuverndar hefur komist að þeirru niðurstöðu að Bára Halldórsdóttir hafi brotið persónuverndarlög þegar hún tók upp samtal þingmanna á Klausturbar í nóvember á síðasta ári. Hún mun ekki þurfa að greiða sekt en henni hefur verið gert skylt að eyða upptökunum. Þetta kemur fram á vef Viljans.
Sjá einnig: Hvort eru ummælin úr klausturgate eða íslensku rappi? – Taktu prófið!
Persónuvernd hefur haft málið til umfjöllunar síðan í desember þegar lögmaður fjögurra þingmanna úr Miðflokknum sendi stofnuninni bréf þar sem var krafist þess að málið yrði rannsakað. Kröfum þingmannanna var hafnað í héraðsdómi og síðar í Landsrétti.