Batahorfur körfuboltamannsins Lamar Odom eru ekki góðar, samkvæmt fréttavefnum TMZ, sem sagði fyrst frá veikindum hans. Odom var fluttur á sjúkrahús í Las Vegas á þriðjudagskvöld eftir að hann veiktist á vændishúsi í Nevada.
Odom hafði notað kókaín og hættulegt stinningarlyf sem lyfjaeftirlit Bandaríkjanna hafði varað við og hvatt fólk til að henda. Samkvæmt heimildum TMZ telja læknar um helmingslíkur á því að Odom lifi af en ástand hans hefur ekkert batnað undanfarna daga.
Þá segir í frétt TMZ að læknar telji að hann hafi orðið fyrir heilaskaða. Hann hefur ekki enn komist til meðvitundar og er í öndunarvél.
Odom var kvæntur Khloe Kardashian og þau eru tæknilega séð enn þá gift þar sem ekki er búið að ganga frá skilnaðinum, þrátt fyrir að þau séu bæði búin að skrifa undir pappírana.
Kardashian-fjölskyldan ku vera búin að fá fjölmarga sérfræðinga á staðinn frá Los Angeles til að vinna með læknunum í Las Vegas.