Til stendur að gera kvikmynd byggða á þáttunum Baywatch, sem voru afar vinsælir á tíunda áratug síðustu aldar.
Unnið er að því að semja við leikstjórann Seth Gordon og kraftakarlinn Dwayne „The Rock“ Johnson hyggst fara með aðalhlutverk ásamt því að framleiða myndina.
Söguþráður myndarinnar er enn þá á huldu en samkvæmt heimildum vefs tímaritsins Variety er um gamanmynd að ræða. Hún verður þó bönnuð börnum, þannig að við megum búast við gamanmynd í dónalegri kantinum.
Leikstjórinn Seth Gordon hefur gert það gott með slíkum gamanmyndum. Hann leikstýrði t.d. Horrible Bosses og Identity Theft.
Ef það var einhvern tíma tilefni til að hlusta á þetta lag.