Eins og við greindum frá í vikunni þá er fyrrum knattspyrnumaðurinn David Beckham staddur á Íslandi. Beckham fór í dag í veiðiferð í Norðurá í Borgarfirði ásamt fjárfestinum Björgólfi Thor og kvikmyndaleikstjóranum Guy Ritchie.
Sjá einnig: David Beckham á Íslandi
Beckham sýndi frá ferðinni á Instagram síðu sinni og sagðist elska Ísland. Beckham og Björgólfur eru góðir félagar en þeir kynntust þegar börn þeirra gengu í sama skóla. Veiðin virtist ganga vel og voru þeir félagar í góðu yfirlæti, Beckham gæddi sér meðal annars á girnilegum kokteil.
„Þeir eru kannski dottnir úr heimsmeistarakeppninni en andskotinn hafi það ég elska Ísland,” skrifaði Beckham við eina myndina sem hann birti.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sen Beckham heimsækir Ísland en hann kom hingað til lands ásamt fjölskyldu sinni sumarið 2016.
Hér að neðan má sjá fleiri myndir úr veiðinni