Ástralski efnafræðikennarinn James Kennedy telur sig hafa fundið ónáttúrulegasta ávöxtinn. Þ.e.a.s þann ávöxt sem maðurinn hefur þróað lengst frá uppruna sínum.
Kennedy telur að vatnsmelónan sé í fyrsta sæti á þessum lista og útskýrir mál sitt með frábærri grafík. Smelltu til að stækka:
Eins og myndin sýnir þá hefur vatnsmelónan stækkað mikið; þvermálið var upprunalega 5,5 sentimetrar en er í dag að jafnaði 66 sentimetrar. Villtar vatnsmelónur fortíðarinnar voru ekki nema um 80 grömm en eru í dag um tvö til átta kíló. Og heimsmetið er 121 kíló.
Kennedy bendir einnig á þróunina á maís og ferskjum:
Smelltu hér til að skoða frábæra bloggsíðu James Kennedy.