Heitustu tónlistarmenn landsins, þeir Flóni, Birnir og Herra Hnetusmjör raða sér í efstu sætin á listanum yfir mest spiluðu lögin á Spotify á Íslandi. Með þeim félögum á listanum kemur svo listamaður úr allt annarri átt, Laddi, með lagið Snjókorn falla. Það var Twitter-notandinn Hallgrímur Oddsson sem benti á þessa skemmtilegu blöndu.
Á listanum eru tekin saman mest spiluðu lögin á Íslandi þessa stundina og er hann uppfærður daglega. Rapparinn Flóni er fyrirferðamikill á listanum en lag hans, Ungir Strákar, trónir á toppnum.
Ísland topp 50 listinn á Spotify í desember. pic.twitter.com/RzqGLTIttd
— Hllgrmr Odssn (@hallgrimuro) December 15, 2017