Árétting kl. 16.29: Vegna fréttar Vísis þar sem haft er eftir Elvu Björk Sverrisdóttur, upplýsingafulltrúa fjármálaráðuneytis, að búnaðurinn í eyra öryggisvarðarins hafi verið handfrjáls búnaður vill Nútíminn áretta að búnaðurinn leit svona út, samkvæmt viðstöddum:
Þá er fullyrt í fyrirsögn fréttarinnar að öryggisvörðurinn sé ekki lífvörður. Nútíminn kallar því eftir að Vísir skilgreini muninn á störfum öryggis- og lífvarða þegar kemur að öryggi ráðamanna landsins.
—
Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra, flutti ávarp á árlegri fjármálaráðstefnu sveitarfélaga, sem hófst í morgun á Hilton Hótel Nordica. Athygli vakti að dökkklæddur öryggisvörður, með samskiptabúnað í eyranu, fylgdi Bjarna eftir og elti hann alla leið inn í bíl þegar ráðherrann yfirgaf ráðstefnuna.
Þetta á sér eðlilegar skýringar þar sem bílstjórar ráðherra sinna hlutverki öryggisvarðar ráðherra. Þetta kemur fram í 8. grein reglugerðar um bifreiðamál ríkisins sem samþykkt var á síðasta ári:
Ríkið skal leggja ráðherrum ríkisstjórnarinnar til bifreið til afnota vegna starfa sinna og til aksturs frá heimili að vinnustað. Bifreiðin skal vera sérútbúin með öryggiskerfi og staðsetningarbúnaði og vera í eigu og rekstri ríkisins. Slíkri bifreið skal að jafnaði ekið af sérstökum bifreiðarstjóra sem sinnir jafnframt hlutverki öryggisvarðar hlutaðeigandi ráðherra.
Gestir á Nordica vissu ekki hvaðan á þá stóð veðrið þegar öryggisvörður Bjarna stillti sér upp og beið á meðan hann flutti ávarpið. Hann virtist þrautþjálfaður og kom það mönnum á óvart þegar hann settist undir stýri á bílnum.
Athygli vakt í fyrra þegar ríkislögreglustjóri auglýsti eftir lögreglumanni á innri vef lögreglunnar sem átti að vera bílstjóri innanríkisráðherra. Var það í fyrsta skipti sem ráða þarf bílstjóra eftir að reglugerðin tók gildi.
Bílstjórar ráðherra þurfa að undirgangast sérstaka þjálfun vegna starfsins. Með breytingum á reglugerðinni var verið að aðlaga hana kröfum nútímans um öryggismál og fella að verklagi sem þegar er viðhaft, til dæmis í tengslum við öryggisbúnað í ráðherrabifreiðum.