Gæludýraeigendum verður loksins kleift að taka gæludýrin með sér á veitingastaði og kaffihús verði nýjar tillögur Bjartar Ólafsdóttur, umhverfisráðherra, að veruleika.
Björt kynnti tillögurnar um málið á ársfundi Bjartrar framtíðar sem fram fór á Icelandair Hótel Reykjavík Natura í gær. Vísir.is greindi frá málinu í dag.
Mér finnst þetta sjálfsagt mál
Tillögur hennar miða að því að veitingamönnum verði í sjálfvald sett hvort þeir leyfi gæludýr eða ekki en tillagan mun aðeins ná til staða sem reknir eru af einkaaðilum .
„Við höfum kannski verið að banna hluti sem ættu að vera undir sjálfsákvörðunarrétti einstaklinganna komið,“ segir Björt.