Bandaríska Hip-Hop sveitin Black Eyed Peas hefur sent frá sér nýtt lag og myndband. Lagið ber titilinn Be Nice og eins og sjá má kemur rapparinn Snoop Dogg við sögu í laginu. Sveitin er ein þeirra sem treður upp í Laugardalnum í júní þegar Secret Solstice hátíðin fer fram.
Sjá einnig: MTV fjallar um Secret Solstice og gefur miða á hátíðina
Lagið er samið af lagahöfundinum Adam Friedman en útgáfa Black Eyed Peas hefur ekki fallið vel í kramið hjá aðdáendum hans. Adam Friedman en hann flutti lagið í bandaríska raunveruleikaþættinum Songland sem fór í loftið 28. maí síðastliðinn.
Ekki eru allir sáttir með útgáfu Black Eyed Peas á laginu. Í athugasemdakerfi Youtube, sem og á Twitter, hafa margir lýst því yfir að upprunalega útgáfa lagsins sé betri. Hér að neðan eru báðar útgáfur.