Sænski bloggarinn Maxinne Björk birti um helgina mynd á Instagram sem vakið hefur gríðarlega athygli í Svíðþjóð og víðar. Á myndinni sem sjá má hér að neðan er Maxinne fáklædd og búin að maka tíðablóði á líkama sinn.
„Í dag, eftir afkastamikinn en mjög svo skemmtilegan dag, kom ég heim og hafði um mikið að hugsa en ég ýtti því til hliðar, ég hafði ekki svigrúm til að takast á við það. Ég settist niður, slakaði á og skyndilega fékk ég þörf fyrir að maka á mig kvenlegum vökva. Þannig að, án þess að hugsa, þá bara gerði ég það,“ segir Björk á Instagram.
Maxinne sem er með yfir 43 þúsund fylgjendur á Instagram bætti við: „Ég makaði tíðablóði yfir mig og velti mér upp úr grasinu í garðinum,“ sagði Maxinne.