Auglýsing

Bó lýsti yfir óánægju sinni með örlög Svölu í Eurovision þegar hann kynnti stig Íslands

Björgvin Halldórsson, eða Bó, kynnti stig íslensku dómnefndarinnar í Eurovision í kvöld. Hann virðist hafa ákveðið að koma lúmskt á framfæri óánægju sinni með að Svala, dóttir hans, hafi ekki komist áfram í lokakeppnina með framlag Íslands, Paper.

Bó var með appelsínugula nælu með fýlukalli nælda í barminn og kom skilaboðum sínum þannig á framfæri. Bó skilaði sínu vel og færði Portúgal tólf stig.

 

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing