Fjölmiðlamaðurinn Bogi Ágústsson gerði góðverk í miðbæ Reykjavíkur í gær og festi það á filmu. Í myndbandi sem hann birti á Facebook fylgir hann andafjölskyldu nokkurri að Reykjavíkurtjörn.
Sjá einnig: Bogi ánægður með Bogakökuna í afmæli Karitasar Lóu: „Það er voðalega gaman að þessu“
Bogi deildi ævintýrinu á Facebook en hann var í hjólaferð um miðbæinn og fann sig knúinn til að fylgja andafjölskyldunni að tjörninni.