Rannsókn Vrije-háskólans í Amsterdam hefur leitt í ljós 3 milljónir umframdauðsfalla frá árinu 2020 en hún náði til tölulegra gagna 47 vestrænna ríkja. Greint er frá niðurstöðum rannsóknarinnar í breska blaðinu The Telegraph en um er að ræða mikinn viðsnúning hjá fjölmiðlinum sem hefur hingað til ekki fjallað um mögulega aukaverkanir COVID-bóluefna.
„Á meðan á heimsfaraldrinum stóð var það áréttað af stjórnmálamönnum og fjölmiðlum daglega að hvert Covid-19 dauðsfall skipti máli og hvert líf ætti skilið vernd með innilokunaraðgerðum og Covid-19 bóluefnum. Í kjölfar heimsfaraldursins ætti sama siðferði að gilda.“
Það sem vekur athygli vísindamanna í niðurstöðum rannsóknarinnar er að umframdauðsföllin halda áfram þrátt fyrir tilkomu bóluefna og annarra sóttvarnaráðstafana. Þeir segja niðurstöðurnar, sem eru fordæmalausar í sögu mannkyns, kalla á frekari rannsóknir á þessum umframdauðsföllum og þætti bóluefnanna í þeim.
Niðurstöður tengja bóluefnin við fjölgun dauðsfallra
Niðurstöðurnar voru birtar í BMJ Public Health en þar segja vísindamennirnir að þrátt fyrir að COVID 19-bóluefnunum hafi verið ætlað að vernda líf og heilsu þeirra þá séu til skráðir atburðir um hið gagnkvæma: „Bæði fagfólk í heilbrigðisþjónustu jafnt sem almennir borgarar hafa tilkynnt alvarleg meiðsl og dauðsföll í kjölfar bólusetningar og er það skráð í hinum ýmsu gagnabönkum víðsvegar um hinn vestræna heim.“
Þá segja þeir enn frekar í skýrslunni:
„Á meðan á heimsfaraldrinum stóð var það áréttað af stjórnmálamönnum og fjölmiðlum daglega að hvert Covid-19 dauðsfall skipti máli og hvert líf ætti skilið vernd með innilokunaraðgerðum og Covid-19 bóluefnum. Í kjölfar heimsfaraldursins ætti sama siðferði að gilda.“
Niðurstöður rannsóknarinnar og frétt The Telegraph hefur nú þegar vakið athygli hér á landi ef marka má til að mynda samfélagsmiðilinn X en þar vitnar þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrum dómsmálaráðherra, Sigríður Á. Andersen, í niðurstöðurnar og bætir við: „Áhugavert.“
The authors are correct to point out that many vaccine-related serious adverse events may have been unreported, and point to the fact that the simultaneous onset of excess mortality and Covid vaccination in Germany is worthy of further investigation on its own.
Áhugavert. https://t.co/OZ871WstUY— Sigríður Á. Andersen (@siggaandersen) June 4, 2024
Ævarandi þögn Alþingis vekur athygli
Þá hefur Þorgeir Eyjólfsson, fyrrverandi forstjóri Lífeyrissjóðs verslunarmanna, einnig skrifað um niðurstöðurnar en á bloggsíðu sinni segir hann að þögn hafi ríkt í íslenskum fjölmiðlum um umframdauðsföllin.
„Tölur Embættis landlæknis og Evrópsku hagfræðistofnunarinnar staðfesta stöðu Íslands mánuð eftir mánuð í hópi þeirra landa sem flest umframdauðsföllin hafa. Þrátt fyrir þessa staðreynd hefur ríkt þögn um umframdauðsföllin í íslenskum fjölmiðlum. Að tugir Íslendinga mæti ótímabærum dauðdaga í mánuði hverjum umfram það sem gera hefði mátt ráð fyrir hefur ekki til þessa verið talið fréttnæmt.“
Hið sanna mun koma í ljós erlendis frá
Hann segir að á endanum munu erlendar athuganir leiða það sanna í ljós þar sem ævarandi þögn ríki á Alþingi.
„Ekki vekur síður athygli hvernig ærandi þögn sýnist ríkja um málið á Alþingi. Sú aðferð íslenskra stjórnvalda að stinga höfðinu í sandinn og horfast ekki í augu við skelfilegar afleiðingar bólusetninganna mun senn reynast þeim ófær þar sem erlendar athuganir munu leiða hið sanna í ljós.“