Auglýsing

Brad Pitt vill sameiginlegt forræði yfir börnum hans og Angelinu Jolie

Brad Pitt vill fá sameiginlegt forræði yfir börnum hans og Angelinu Jolie, þeim Maddox, Pax, Zahöru, Shiloh og tvíburunum Knox og Vivienne. Þetta kemur fram á vef fréttastofu NBC.

Jolie sótti um skilnað fyrir tveimur mánuðum og fór fram á fullt forræði yfir börnunum. Brad Pitt hefur verið sakaður um að beita börnin ofbeldi en atvik sem átti sér stað í borð um flugvél, milli Pitt og Pax, elsta sonar hans og Jolie, er nú rannsakað af félagsmálayfirvöldum í Los Angeles.

Pitt neitar að hafa beitt börnin ofbeldi. Í september náðu Jolie og Pitt tímabundnu samkomulagi um að Pitt fengi að hitta börnin undir eftirliti, ef hann myndi fallast á að gangast undir áfengis- og eiturlyfjapróf.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing