Hollywood-leikarinn Bryan Cranston er staddur á Íslandi. Hann birti myndband á Instagram rétt í þessu þar sem hann tilkynnti þetta ásamt því að segja frá raunum sínum með tannbursta og fótaáburð.
Bryan er í einu orði sagt stórkostlegur leikari. Íslendingar kynntust honum fyrst í þáttunum Malcolm in the Middle á Skjá einum í upp úr aldamótum en hann túlkaði pabbann á stórkostlegan hátt. Hann varð hins vegar goðsögn fyrir frammistöðu sína í þáttunum Breaking Bad þar sem hann leikur Walter White.
„Þetta gerðist. Ég er hérna með ferðatannbursta vegna þess að ég er á Ísland,“ segir hann í myndbandinu á Instgram.
„Og ég er hérna með tannkremstúbu sem ég setti á tannburstann og byrjaði að bursta. Ég uppgötvaði að þetta er versta tannkrem sem ég hef smakkað.“ Hann leit svo á túbuna og áttaði sig á því að þetta var ekki tannkrem, heldur fótaáburður.