Ósk Gunnarsdóttir og Sverrir Bergmann hætta með Morgunþáttinn á FM957 í desember. Þetta kemur fram í Lífinu, fylgiriti Fréttablaðsins í dag. Fyrsti þátturinn fór í loftið í júlí í fyrra og síðasti þátturinn verður á dagskrá 18. desember.
„Já, morgunþátturinn eins og hann er í þessari mynd í dag er að líða undir lok og verður seinasti þátturinn okkar sendur út 18. desember, þá skiljast leiðir, allavega í bili,“ segir Ósk í Lífinu en mörg tilboð liggja á borðinu og hún hyggst velja úr á nýju ári.
Ég fylgi innsæi mínu og trúi því að ákvörðunin sem ég tek sé sú rétta. Ég er þannig að ég næ alltaf að gera jákvætt úr hlutun um og er aldrei verkefnalaus svo ég kvíði þessu alls ekki heldur einmitt bara hlakka til að takast á við eitthvað nýtt.
Sverrir er einn allra besti söngvari landsins og hyggst einbeita sér að tónlistinni á nýju ári.