Bubbi Morthens var lagður inn á Landspítalan til meðhöndlunar kvilla í nefi sem hann hefur glímt við undanfarið. Hann spilar því ekki með Dimmu í Garðpartýi Bylgjunnar í kvöld á Menningarnótt eins og stóð til. Bubbi tilkynnti þetta á Facebook-síðu sinni.
Í yfirlýsingu sinni segist Bubbi hafa glímt við kvilla í kefi undanfarið sem hafi ekki náð að koma í lag fyrir kvöldið. Hann var lagður inn á Landspítalan til meðhöndlunar.
Bubbi segist hafa hlakkað til að njóta með tónleikagestum en Dimma muni koma fram án hans á tilsettum tíma „með kennslustund í Rokki“.