Bubbi Morthens hefur farið á kostum á Twitter eftir að Björt framtíð sleit ríkisstjórnarsamstarfinu í gær. Hann er reyndar alltaf með skemmtilegri tísturum. En í tísti sem hefur vakið mikla athygli leggur hann til að fólk hreinlega hætti að pæla í pólitík og fari að stunda munnmök í staðinn.
Legg til að fólk hætti að pæla í pólitík og fari að stunda munmök
— Bubbi Morthens (@BubbiMorthens) September 15, 2017
Björt framtíð sleit ríkisstjórnarsamstarfinu í gær eftir að í ljós kom að Sigríður Andersen dómsmálaráðherra og Bjarni Benediktsson forsætisráðherra héldu upplýsingum frá samstarfsflokkum sínum.
Hjalti Sigurjón Hauksson fékk uppreist æru í fyrrahaust. Hann hann fékk fimm og hálfs árs dóm árið 2004 fyrir að beita stjúpdóttur sína grófu kynferðislegu ofbeldi um árabil. Í gær kom í ljós að Benedikt Sveinsson, faðir Bjarna Benediktssonar, veitti Hjalta meðmæli vegna umsóknar um að fá uppreista æru í fyrra.
Sigríður Andersen sagði svo frá því fréttum í gær að hún hafi sagt Bjarna frá meðmælabréfi föður síns í júlí. Þau greindu samstarfsflokkum sínum í ríkisstjórn ekki frá þessu. Þannig voru þau að vinna í eigin hagsmunum frekar en almannahag að mati stjórnar Bjartrar framtíðar, sem ákvað því að slíta ríkisstjórnarsamstarfinu. Þá telur stjórn Bjartrar framtíðar að um trúnaðarbrest sé að ræða.
Tillaga Bubba er góð í ljósi þess að Íslendingar stefna í þriðju Alþingiskosningarnar frá árinu 2013 — og þær fimmtu frá árinu 2007. Og Björt Ólafsdóttir, umhverfisráðherra í ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar, ætlar að láta sig hafa það.
ok þá
— Björt Ólafsdóttir (@bjortolafs) September 15, 2017
En er ekki hægt að gera bæði í einu?
Nei pólitík tæmir limin af blóði og þurrkar rósina
— Bubbi Morthens (@BubbiMorthens) September 15, 2017
Þetta er ekki eina tístið um pólitík frá Bubba. Í gær sagði hann líka að kynlíf væri eins og flúðasigling á bíldekki niður Hvítá. Og bætti svo í
Kynlíf er flúðar sigling á bíldekk niður Hvítá dásamlegt.Pólitík er að vakna í kistunni eftir þú hefur verið jarðaður verði þeim að góðu
— Bubbi Morthens (@BubbiMorthens) September 15, 2017