Margir muna eflaust eftir Buffalo-skónum sem voru gríðarlega vinsælir á tíunda áratug síðustu aldar og í upphafi þessarar aldar. Kryddpíurnar gerðu þá ódauðlega og nánast allir áttu par. Nú geta Buffalo-aðdáendur tekið gleði sína á ný því skórnir snúa aftur til Íslands í verslun GK Reykjavík í haust.
Já, þið lásuð rétt. Þessir eru að koma aftur
Kryddpíurnar gerðu þá vinsæla seint á síðustu öld og áttu allir aðdáendur hljómsveitarinnar par
Stórir, klunnalegir og jafnvel ljótir strigaskór hafa verið vinsælir undanfarið og því ekki að undra að konungur klunnalegu skónna snúi aftur. Hér eru skór tískuhússins Balenciaga
https://www.instagram.com/p/BgG1fmThZcD/?hl=en&taken-by=manbehindthebrand
Buffalo koma í GK Reykjavík í haust
https://www.instagram.com/p/BkxJFqOAegK/?taken-by=gkreykjavik