Auglýsing

Carmen Electra opnar sig um hjónband sitt og Dennis Rodman

Körfuboltaunnendur og aðdáendur Strandvarða (eflaust einn og sami hópurinn) muna eflaust eftir því þegar Dennis Rodman kvæntist leikkonunni og fyrirsætunni Carmen Electra árið 1998.

Nú, 16 árum eftir að þau giftu sig og 15 árum eftir að þau skildu, hefur Electra opnað sig um hjónabandið. Hún segir í svokölluðu „Hvar eru þau nú?“ innslagi í þætti Opruh Winfrey að tíminn með Rodman hafi verið bæði æðislegur og hræðilegur.

„Samband okkar var mjög ástríðufullt. Þegar það var gott var það stórkostlegt og þegar það var slæmt var það hræðilegt,“ segir hún.

Rodman og Electra voru bæði handtekin saman árið 1999 fyrir heimilisofbeldi en voru ekki ákærð. Þau skildu skömmu síðar.

Hér má sjá hluta viðtalsins við Carmen Electra, sem er orðin 42 ára gömul:

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing