Bandaríski leikarinn Chris Pratt er væntanlegur hingað til lands samkvæmt Hollywood Reporter. Þar segir að hann muni fara með hlutverk í kvikmyndinni Ghost Draft. Tökur á myndinni munu að hluta til fara fram hér á landi.
Chris Pratt sló í gegn í gamanþáttunum Parks and Recreation og hefur síðan þá leikið í kvikmyndum á borð við Guardians of The Galaxy og Jurassic Park.