Chris Pratt og Jennifer Lawrence fara með aðalhlutverkin í kvikmyndinni Passengers, sem verður frumsýnd síðar í desember. Þau ferðast nú um Bandaríkin saman og kynna myndina.
Þegar aðdáendur Jennifer Lawrence báðu Chris Pratt um að birta myndir af henni á Instagram tók hann til sinna ráða. Undanfarið hefur hann birt sprenghlægilegar þar sem Jennifer hefur verið klippt úr.