Kvikmyndin Fantastic Beasts: The Crimes of Grindelwald var forsýnd í vikunni í Sambíóunum Egilshöll. Þrír Íslendingar eru áberandi í myndinni en þau Ingvar E. Sigurðsson, Ólafur Darri og Álfrún Gísladóttir leika í henni.
Áður en sýningin hófst sendi Ingvar E. Sigurðsson áhorfendum kveðju frá London þar sem hann er í tökum.