Tónlistarmaðurinn vinsæli Daði Freyr sendi í dag frá sér nýtt myndband við lagið Endurtaka mig. Myndbandið er unnið af Samlist sem Daði sér um ásamt Árný eiginkonu sinni.
Þuríður Blær Jóhannsdóttir eða Blær úr Reykjavíkurdætrum syngur með Daða í laginu sem má heyra hér að neðan.